:: Þann 25. október var tekin fyrsta skóflustunga fyrir Krikaskóla í Mosfellsbæ. Það voru verðandi nemendur í Krikaskóla ásamt fulltrúum úr bæjarráði sem tóku skóflustunguna sameiginlega. Samstarfshópur sem samanstendur af skólaráðgjöfum, verkfræðingum, rithöfundi, landslagsarkitektum og arkitektum stendur á bak við vinningstillöguna að skólanum.