Gat ekki hlaðið inn upplýsingum um afhendingu
Prjónakaffi – taktu verkefnið þitt með og eigðu notalega stund með okkur.
Til að tryggja þér sæti biðjum við þig um að kaupa miða fyrirfram – og við tökum frá sæti fyrir þig. Við bjóðum upp á te, kaffi og eitthvað gotterí.
Komdu með það sem þú ert með á prjónunum – sokka, peysu eða jafnvel bara prjónaprufu – og njóttu þess að spjalla um allt milli himins og jarðar með prjónana í hendinni.
Eigðu með okkur rólega stund, njóttu samvista með öðrum prjónurum og fáðu innblástur og hugmyndir að nýjum verkefnum eða sniðugum aðferðum.
Hvort sem þú ert reyndur prjónari eða rétt að byrja, er þú velkomin.
STAÐSETNING
Prjónakaffið fer fram í fallega, bjarta rýminu okkar, fullu af garni,
einrúm Studio á:
Skjulhøj Allé 32 C – inngangur við veggmyndina innst í innkeyrslunni
2720 Vanløse
Danmörk